FNÍS

Félag nema í sjúkraþjálfun

«Febrúar 2010»
sunmánþrimiðfimföslau
09:53:18

123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28

Valmynd

Atburðir

Sjá alla

Afmælisbörnin

Innskráðir

Enginn innskráður...

Vísindafólk

Topp 50

FNÍS þakkar...

Serrano Altis Rizzo The Celtic Cross

Árshátíð FNÍS 2010

3. febrúar 2010 kl. 13:26

Verður haldin þann 20.febrúar í Húsi meistaranna, öðru nafni í Sameign Iðnaðarmanna í Skipholti 70 (fyrir ofan American Style).
Húsið opnar kl. 19:30, þar sem tekið verður á móti fólki með freyðandi fordrykk en borðhaldið hefst stundvíslega kl 20:00
Margverðlaunaði eðalkokkurinn Björgvin Mýrdal mun sjá um matseldina en um er að ræða 3ja rétta máltí
ð:
Forréttur:
Rjómalöguð villisveppasúpa með fínsöxuðum vorlauk,
ásamt nýbökuðu brauði & kryddsmjöri

Aðalréttur:
Lambaframhryggur og gljáðar kalkúnabringur
með mildri hvítlaukskartöflumús,
smjörsteiktu grænmetis'ragout' & dökkri Madeira sósu

Eftirréttur:
Mjólkursúkkulaðimús með hindberjaís & vanillusósu

* Hverjum og einum er svo velkomið að koma með sínar eigin vínveitingar í hús.
Skemmtiatriði verða alfarið í höndum okkar nemenda og á hver árgangur að sjá til þess að skemmtunin verði ógurleg fyrir samnemendur. Þannig, allir að fara að skyrpa í lófana og leggja metnað í atriði sitt til að gera kvöldið ógleymanlegt fyrir okkur hin.
Eftir matinn verður svo svaðalegur playlisti spilaður fram í rauða nóttina og öllum gefst færi á að spreyta listir sínar á dansgólfinu.
Einnig verður í boði línuhappadrætti, þar sem hver lína kostar 100 kr og leggst það verð ofan á miðaverð. Um er að ræða happadrætti þar sem hver kaupir sér línu með nafninu sínu og því fleiri línur sem þið kaupið, því meiri vinningsmöguleikar. Og viljum við benda á að vinningarnir verða ekki af verri endanum! Þeir sem kaupa sér línu eiga möguleika á að vinna matarvinninga hjá HAPP, glaðning frá Nóa Siríus, Hálind, 66°norður, dekur og margt margt fleira.
Miðaverð fyrir árshátíðina er 5000 kr. og gildir sama verð fyrir maka.
Miðasala stendur yfir dagana 8-10 febrúar og til að halda niðri miðaverði og vera umhverfisvæn, þá prentum við ekki út neina miða heldur munuð þið millifæra beint inn á reikning nemendafélags. Allir að taka fram í skýringu ef að þið eruð einnig að kaupa miða fyrir maka og hversu margar línur þið viljið kaupa i línuhappadrætti
.

Kv. Stjórnin

Framadagar 2010

29. janúar 2010 kl. 15:35

Vilt þú vita hvað þér stendur til boða að loknu námi?

Framadagar haldnir miðvikudaginn 10. febrúar milli 11 og 17 í Háskólabíói

Framadagar eru í líkingu við stóra háskóladaginn nema í stað þess að kynna háskóla
er fyriritæki allstaðar úr atvinnulífinu að kynna starfsmöguleika að loknu námi eða
meðfram námi. Fjölmörg dæmi eru þess að háskólanemar hafa fengið vinnu á því að mæta
á Framadaga en jafnframt er þetta frábær leið til að kynnast fyrirtækjum í landinu.

Ásamt fyrirtækjunum verður lifandi tónlist í boði Agent Fresco, Our lives, Útidúrs
og Vicky og einnig koma þekktir örfyrirlestrar úr atvinnulífinu : CCP,
Hönnunarmiðstöðin, Carbfix verkefnið, Jón G. Sullenberger, Gott val og Gogoyoko.

 

Próflokadjamm á NASA

16. desember 2009 kl. 14:46

 Eins og þið flest hafið kannski orðið vör við þá er próflokadjamm Háskólans núna á föstudaginn á Nasa þar sem Paparnir ætla að spila fram eftir öllu. Miðasala er hafin á Háskólatorgi, hægt er að kaupa miða á morgun fimmtudag, frá kl 12-14.  Miðarnir kosta 1500 kr í forsölu, um að gera að tryggja sér miða sem fyrst :)

Gangi ykkur annars vel í síðastu prófunum :)

Kv. Stjórnin

Heilbrigðisleikar!!

27. október 2009 kl. 17:12

Þá er komið að því!!!
Eins og flestir muna þá heppnuðust Heilbrigðisleikarnir gífurlega vel í fyrra og höfum við, deildirnar við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, ákveðið að halda þessari góðu hefð gangandi!!
Það sem ÞÚ þarft að vita er að föstudagurinn 6. nóvember 2009 á Rúbín í Öskjuhlíð er the place to be!!

Eins og í fyrra munu herlegheitin byrja á sérstökum HeilbrigðisLEIKUM þar sem deildir munu keppa sín á milli í ýmsum þrautum og keppnum. Hver deild sendir frá sér stolt sitt sem þarf að innihalda 6 manns; þrjú tveggja manna pör. Að sjálfsögðu fá þessir ofurhugar svo frítt á ballið og veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurliðið!!

Húsið opnar kl 19:30 og leikarnir hefjast kl: 20:00.
Ballið sjálft hefst svo með dúndrandi Glimmer tónlist í boði DJ Glimmer tvíeykisins @ 22:00 og mun partýið standa til 01:00!!

Fyrir verðandi sálfræðinga, lækna, hjúkrunarfræðinga, tannlækna, lyfjafræðinga, sjúkraþjálfara, lífeinda- og geislafræðinga og næringar- og matvælafræðinga kostar litlar 1000 krónur inn í forsölu.
Fyrir aðra góðvini þessa ágæta fólks kostar örlitlar 1500 krónur í forsölu.
Auk þess verður selt inn í dyrunum og mun þá miðinn kosta pínkulitlar 2000 krónur fyrir alla.

Það er augljóst mál að enginn ætlar að missa af þessari gleði!!

Miðasala fer fram í gegnum heimabanka og þið eruð vinsamlegast beðin um að leggja rétta upphæð inná reikningsnúmerið 0101-15-382078 og kennitölu 151088-2449.
GLEYMIÐ EKKI að setja nafn ykkar og nafn deildar ykkar inní skýringar, og málið er dautt.

Hlökkum til að sjá ykkur Glimmrandi hress föstudaginn 6 nóvember á Rúbín!! 
 

Styrktarleikur stúdenta

26. október 2009 kl. 19:06

Laugardaginn n.k. kl 17:00 munu úrvalslið Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í knattspyrnu etja kappi í Kórnum í Kópavogi. Hvor skólinn mun tefla fram 16 stjörnum úr íslenskri knattspyrnu og allt til styrktar góðu málefni. Fyrirliðarnir eru þeir Auðunn Helgasog (HR) og Gunnar Már Guðmundsson (HÍ). Kristinn Jakobsson mun dæma leikinn.

Miðaverð er 1000 kr. og mun allur ágóðinn renna óskiptur til Krafts, stuðningsfélags ungs fólk sem hefur greinst með krabbamein. Miðasala er hafin á midi.is en einnig verður selt við inngang.

Við hvetjum alla til þess að mæta og horfa á vonandi hörkuleik! 

Kv. Stjórnin

Þjálfi

20. október 2009 kl. 18:49

Hæ hæ.....

Eins og þið vitið vonandi öll þá er Þjálfi (litla árshátiðin okkar) á föstudaginn!! Verðið er 2000 kr og mikilvægt er að borga sem fyrst, helst í síðasta lagi á miðvikudaginn 21.10. Þið verði  að borga nemendafélagsgjöldin til að geta tekið þátt í þessu og því sem félagið stendur fyrir framvegis.

Þemað á Þjálfa er hermanna! :) skylda að mæti í einhverju hermanna síðan er bara að koma með góða skapið!

FNÍS: 2500 kr

Þjálfi: 2000 kr

 Rkn. 137-26-4410
 kt. 441094-2059

                                                      

Þjálfi

20. október 2009 kl. 18:49

Hæ hæ.....

Eins og þið vitið vonandi öll þá er Þjálfi (litla árshátiðin okkar) á föstudaginn!! Verðið er 2000 kr og mikilvægt er að borga sem fyrst, helst í síðasta lagi á miðvikudaginn 21.10. Þið verði  að borga nemendafélagsgjöldin til að geta tekið þátt í þessu og því sem félagið stendur fyrir framvegis.

Þemað á Þjálfa er hermanna! :) skylda að mæti í einhverju hermanna síðan er bara að koma með góða skapið!

FNÍS: 2500 kr

Þjálfi: 2000 kr

 Rkn. 137-26-4410
 kt. 441094-2059

                                                       kv

Oktoberfest

8. október 2009 kl. 00:21

Sæl öll

Föstudaginn 9. október ætlum við að hittast á kaffi zimsen og hita upp fyrir oktoberfest. Það verður kútur í boði og svo bjór á 350 kall eftir það, við tökum svo röltið niður í tjald saman. Þetta byrjar á milli 18 og 19.

Sjáumst. Stjórnin

Firmakeppni Gróttu

6. október 2009 kl. 09:41

Sæl

Laugardaginn 10. október frá kl 14:00 - 17:00 verður firmakeppni Gróttu haldin á Gróttuvelli. 6 manna lið - 4 varamenn leyfðir. Veglegir vinningar í boði. Þáttökgjald 10.000 kr á lið.

Um kvöldið verður svo skemmtihóf fálkanna og verðlaunaafhending mótsins. Hófið verður haldið í félagsheimili Gróttu við Gróttuvöll og byrja herlegheitin 21:00 og stendur til 00:00. DJ Stjáni Finnboga þeytir 80 snúningum.

Leikmenn Gróttu sjá um veitingar á spottprís

Ræðumaður kvöldsins er Ásmundur Guðni Haraldsson

Rúsinan er svo happadrætti meistaraflokks

Aðalvinningur: miðar fyrir 2 til Evrópu með Icelandair

Skráning er hjá asveins@hotmail.com

 

Koma svo, setjum í eitt sjúkraþjálfara lið og vinnum þetta mót

 

Kv. Garðar

Vísó í laugar

2. október 2009 kl. 16:05

Vísindaferðin í laugar byrjar 18:00 en ekki 17:00. Reynið að láta það berast.

 

Kv. Stjórnin

Eldri »